Ból
Ból er eldheit og grípandi átakasaga um ofurást og hjartasorg, styrk og uppgjöf, listilega stíluð og byggð svo úr verður magnað og...
Also Available in:
- Amazon
- Audible
- Barnes & Noble
- AbeBooks
- Kobo
More Details
Ból er eldheit og grípandi átakasaga um ofurást og hjartasorg, styrk og uppgjöf, listilega stíluð og byggð svo úr verður magnað og margbrotið skáldverk. Líneik Hjálmsdóttur – LínLín – er ekki fisjað saman. Hún hefur stigið ölduna í stórsjó lífsins og stendur enn keik þrátt fyrir sáran missi og þung áföll. En nú er komið að ögurstund. Náttúran fer hamförum rétt við sælureitinn hennar í sveitinni, hjartastaðinn sem foreldrarnir byggðu upp og ræktuðu. Einbeitt heldur hún til móts við ógnina sem engu eirir – og fortíðina um leið: minningarnar, ástina, leyndarmálin og sorgirnar stóru. Steinunn Sigurðardóttir hefur skrifað fjölda óviðjafnanlegra verka sem hafa notið verðskuldaðra vinsælda. Skörp sýn hennar á mannlega náttúru, beitt skopskyn og leiftrandi stíll heilla lesendur og ný skáldsaga frá henni sætir ávallt tíðindum.
- Format:
- Pages: pages
- Publication:
- Publisher:
- Edition:
- Language:
- ISBN10:9979351497
- ISBN13:9789979351498
- kindle Asin:B0CMDCG9KF









